18.12.2009 | 09:32
ESB tekur af hörku á svindli
Evrópska losunarkerfið(ETS) virkar mjög vel og tryggir bætt loftgæði fyrir alla íbúa sambandsins. Í örfáum undantekningatilfellum hefur skipulögð glæpastarfsemi nýtt sér glufur í skattkerfi einstakra landa til að hagnast. Svindlið gengur þannig fyrir sig að glæpasamtök opna koltvísiringsreikning í einhverju ESB landi. Kaupa síðan losunarheimildir frá öðru ESB landi án virðisaukaskatts. Losunareiningarnar eru síðan seldar til grunlausra kaupanda sem borga virðisauka ofan á kaupverðið til seljandans. Seljandin "gufar" síðan upp og skattayfirvöld í viðkomandi landi sjá aldrei eina einustu krónu.
ESB hefur úthlutað hverju aðildarlandi fyrir sig svokölluðum losunareiningum byggðum á reynslu fyrri ára. Ekki ósvipað og þegar íslenska kvótanum var úthlutað á sínum tíma. Síðan úthlutar hvert aðildarland kvótanum til fyrirtækja sem síðan geta selt hann eða keypt á frjálsum markaði. Í dag eru 6 opinberir markaðir staðsettir í Norgi, Þýskalandi, Frakklandi, Austurríki, Hollandi og Bretlandi ásamt fjölmörgum öðrum leiðum til að selja kvótan.
Yfir tveimur milljörðum losunareininga hefur verið úthlutað til um 12.000 mengandi fyrirtækja í 27 löndum. Markaðurinn veltir árlega 16.560 milljörðum króna og fer stækkandi.
Losunarheimildir notaðar í svindl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Spennandi. En hver verður okkar hluti í þessum kvóta, miðað við reynslu fyrri ára? Höfum við mengað nóg til að græða á þessari nýju og spennandi loftbólu?
molta, 18.12.2009 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.